Fiskistofa hefur sent frá sér tilkynningu um að eftirlitsmenn stofnunarinnar munu fljúga ómönnuðum loftförum til eftirlits við fiskveiðar í ágúst. Í tilkynningunni segir að allar upptökur verði skoðaðar vel og fiskur sem fer fyrir borð er tegundargreindur.
Stofnunin biðlar til sjómanna og útgerðaraðila að kynna sér vel reglur og lög um stjórn fiskveiða. Hún segir að óhætt er að sleppa hlýra og ef hann er lífvænlegur. Einnig er heimilt að sleppa lífvænlegri tindaskötu og sleppa á grásleppu sem fæst í þorskanet. Skylt er að sleppa beinhákarli, háfi og hámeri, ef lífvænleg. Þá er heimilt að sleppa lífvænlegum rauðmaga við hrognkelsaveiðar.
Komi lúða um borð í veiðiskip sem meðafli á umsvifalaust að sleppa henni ef hún er lífvænleg og við línuveiðar skal sleppa allri lúðu með því að skera á taum línunnar.
Við handfæra- og sjóstangaveiðar á að losa lúðu varfærnislega af krókum eða skera á lykkju slóðans áður en lúða kemur um borð.