Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra hefur lagt fram tillögu um að takmarka dragnótaveiðar á grunnslóð úti fyrir Norðurströndum og Hornströndum milli Hornbjargs og Gjögurs, að því er fram kemur á vef ráðuneytisins.
Tillaga þar um kemur fram í drögum að reglugerð sem hefur verið send út til kynningar. Umsagnarfrestur er til 7. febrúar næstkomandi.
Í drögunum er lagt til að frá og með 1. mars 2011 til og með 31. desember 2015 verði allar veiðar með dragnót bannaðar á eftirfarandi svæði: Innan línu sem dregin er frá Rana í Hornbjargi 66°27,3´ N - 22°24,1´ V, í Selsker 66°07,5´ N - 21°30,0´ V og þaðan í Gjögurvita 65°59,3´ N - 21°19,0´ V. Bannið gildir allt árið.