Krossfiskur er nýr nytjastofn sem er í uppsiglingu í dönskum sjávarútvegi. Það hefur þó ekki gengið þrautalaust. Þegar tilraunaveiðar og -vinnsla voru hafin síðastliðið haust kom babb í bátinn því regluverk Evrópusambandsins þekkti ekki krossfisk.

Hugmynd Dana var að nota krossfisk sem fóður í svínarækt en þar sem krossfiskur var ekki á lista yfir leyfilegt dýrafóður hjá ESB mátti ekki selja svínakjöt af dýrum sem höfðu lagt sér það til munns. Það tók ESB rúmt ár að ganga úr skugga um að þetta fóður væri í lagi og tilraunir með krossfiskinn geta því hafist á ný.

Háskólinn í Árósum hefur staðið fyrir þessum tilraunum en krossfiskarnir eru veiddir í Limafirði. Þeir eru fyrst þurrkaðir og þar á eftir muldir í duft eða mjöl. Duftið er prótínríkt og vísindamenn telja að það geti orðið uppstaða í fóðri svínanna. Sjómenn fagna þessu því krossfiskurinn hefur verið að breiðast út í Limafirði öllum til ama því hann étur kræklinga. Nytjar á kræklingi er stór atvinnugrein við Limafjörð sem kunnugt er. Menn slá því tvær flugur í einu höggi, losna við afræningja í bláskelinni og fá tekjur af krossfiskveiðum.

Vísindamenn segja að krossfiskamjöl henti sérstaklega vel í vistvæna svínakjötsframleiðslu og í alifuglarækt.