Útgerðarfélagið Tøkje Båt AS í Austevoll í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.

Það er Ole Tøkje sem stendur að útgerðinni. Ole verður jafnframt skipstjóri á bátnum.

Nýi báturinn heitir Varde. Hann er 10.99 metrar á lengd og mælist 11brúttótonn.

Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C90. Hún er 410 hestöfl og tengd ZF286IV gír.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Olex og Simrad.

Hann er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Varde er útbúinn til netaveiða og kemur veiðibúnaður frá Noregi. Í lestinni er pláss fyrir 15 fiskikör, 380 lítra hvert. Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Í bátnum er stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni. Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar. Salerni er með sturtu. Báturinn er nýkominn til Noregs og hefur veiðar á næstu dögum.