Yfirvöld í Chicago íhuga að beita kostnaðarsömum aðgerðum til að koma í veg fyrir að asíukarpi komist upp í Michiganvatn og nái að fjölga sér þar samkvæmt því sem segir á vef BBC .
Asíukarpi var fluttur til suðurríkja Bandaríkjanna fyrir ríflega þremur áratugum til að draga úr þörungamyndun í skólphreinsunarstöðvum. Nokkrir fiskar sluppu út í Mississippifljót þar sem þeim hefur fjölgað ört og þeir breiðst út norður á bóginn. Asíukarpi getur orðið allt að metri að lengd og hefur reynst innlendum fisktegundum erfiður keppinautur.
Ein hugmyndin gerir ráð fyrir að lokur verði settar á sýki í borginni sem torveldi fiskum að komast eftir þeim. Aðrir vilja auknar veiðar á kvikindinu og búa til úr því fiskibollur og útrýma karpanum þannig.