„Leitast verður við að finna starfsmönnum sambærileg störf í fiskvinnslu Brims í Norðurgarði í Reykjavík eða önnur störf innan samstæðu Brims á næstu vikum og þeim veitt ráðgjöf og aðstoð við atvinnuleit,“ segir í frétt á vefsíðu Brims þar sem skýrt er því að 31 starfsmanni Fiskvinnslunnar Kambs í Hafnarfirði hefur verið sagt upp störfum.

Segir Brim að áformað sé að sameina botnfiskvinnslu Fiskvinnslunnar Kambs í Hafnarfirði við botnfiskvinnslu Brims í Norðurgarði í Reykjavík. Áætlað sé að hætta fiskvinnslu í Hafnarfirði í síðasta lagi 30. október.

Þá segir að umtalsverðar sviptingar hafi verið í sjávarútvegi og á alþjóðamörkuðum frá því Brim festi kaup á Fiskvinnslunni Kambi í október 2019.

„Heildar aflaheimildir í þorski á Íslandsmiðum hafa verið skertar um 23,5%, samkeppnisstaða við erlendar fiskvinnslur um kaup á hráefni/fiski til vinnslu á innlendum fiskmörkuðum hefur verið erfið, verðið hefur verið hátt og afkoman af vinnslu á því hráefni því engin auk þessa hafa orðið miklar kostnaðarhækkanir, bæði innanlands og erlendis, sem hafa haft áhrif á reksturinn,“ segir ávefsíðu Brims.

„Með þessum aðgerðum er verið að bregðast við breyttum rekstraraðstæðum, styrkja botnfiskvinnslu Brims og þannig styðja við rekstur félagsins til lengri tíma,“ segir að endingu.