Brim hf. mun birta uppgjör fyrir annan ársfjórðung 2023 eftir lokun markaða á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

„Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 24. ágúst klukkan 16:30 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1,“ segir á brim.is.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, kynnir uppgjör fjórðungsins og svarar spurningum.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í streymi á www.brim.is/streymi. „Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi stendur á netfangið [email protected]. Aðsendum spurningum verður svarað í lok fundar,“ segir á vefsíðu Brims.