Íslensk og bresk stjórnvöld undirrituðu í dag bráðabirgðafríverslunarsamning sem tryggir óbreytt tollkjör vegna vöruviðskipta við Bretland, að því er fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu .
Samningurinn mun taka gildi um áramót þegar aðlögunartímabili vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu lýkur.
Haft er eftir Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, að það sé fagnaðarefni að kjarnahagsmunir íslenskra fyrirtækja hafi nú verið tryggðir.
„Samningurinn sem undirritaður var í Lundúnum í dag byggist á samningi sem upphaflega var gerður í apríl 2019 og stóð til að tæki gildi ef útganga Bretlands úr ESB hefði verið án samnings. Þar sem Bretland gekk úr Evrópusambandinu með útgöngusamningi þann 31. janúar sl. kom aldrei til þess að sá samningur tæki gildi. Í október sl. náðist samkomulag um að bráðabirgðasamningurinn taki gildi um áramót uns fríverslunarsamningurinn er tilbúinn og með undirrituninni í dag er sú ákvörðun fest í sessi,“ segir enn fremur í tilkynningunni.
Þá segir að samningurinn tryggi að inn- og útflutningur til og frá Bretlandi lúti ekki hærri tollum en í dag.
„Markmið samningsins er þannig að viðhalda gildandi kjörum þar til samið hefur verið um nýjan og viðameiri fríverslunarsamning á milli ríkjanna. Noregur á jafnframt aðild að samningnum.
Fríverslunarviðræður Íslands og hinna EFTA-ríkjanna innan EES, Noregs og Liechtenstein, við Bretland standa nú yfir. Þrátt fyrir kórónuveirufaraldurinn hafa viðræður gengið vel og eru langt komnar. Samninganefndir hafa hist ört og reglulega á rafrænum fundum með það að markmiði að ljúka viðræðum svo fljótt sem auðið er.“
Enn er óvíst hvort Bretlands og Evrópusambandsins nái að ljúka fríverslunarsamningum fyrir áramót.
„Þar sem samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) mun ekki gilda lengur um Bretland frá og með 1. janúar 2021 þurfa Íslendingar að huga að nokkrum atriðum í því sambandi, sérstaklega þeir sem búa á Bretlandi eða hyggjast flytja þangað á næstunni og þeir sem stunda viðskipti við Bretland eða eiga þar annara hagsmuna að gæta.“