Að tillögu Sigurðar Inga Jóhannssonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ríkisstjórnin samþykkt stórátak í kortlagningu hafsbotnsins innan íslensku efnahagslögsögunnar. Kortlagningin mun styrkja stöðu Íslands sem ábyrgrar fiskveiðiþjóðar og getur skapað mikið markaðsgildi fyrir íslenskar sjávarafurðir. Þá mun kortlagningin verða mikilvæg undirstaða þegar kemur að því að skipuleggja nýtingu og vernd haf- og strandsvæða. Þatta kemur fram á vef ráðuneytisins.

Ríkisstjórnin mun leggja til við Alþingi, við framlagningu fjárlagafrumvarps fyrir árið 2017, að tryggt verði fjármagn til verkefnisins í fjárlögum þess árs á grundvelli 10-15 ára verkáætlunar sem tilbúin verður í upphafi nýs árs. Hafrannsóknastofnun mun sjá um úthald skipa, mælingar og frumúrvinnslu þannig að öll gögn verði aðgengileg stofnunum, háskólum og atvinnulífinu í landinu.

Íslenska efnahagslögsagan er um 754.000 km² eða rúmlega sjöfalt stærri en sem nemur flatarmáli landsins. Kortlagning hafsbotnsins er því umfangsmikið verkefni sem sinna þarf sérstaklega, en að óbreyttu mun taka marga áratugi að kortleggja allan hafsbotninn. Slíkt er ekki viðunandi í ljósi þess hve verkefnið er brýnt og skiptir miklu máli fyrir rannsóknir og hagsmuni Íslendinga á fjölmörgum sviðum, segir á vef ráðuneytisins.

Sjá nánar HÉR .