Börkur NK kom til Neskaupstaðar í gær með 1.092 tonn af síld. Síldin fékkst í einu holi í fyrrinótt norðan við Litla-Grunn í Héraðsflóadýpinu. Heimasíða Sildarvinnslunnar ræddi við Hjörvar Hjálmarsson skipstjóra og spurði hvort þetta væri ekki með stærstu holum.

„Jú, ég hef ekki heyrt af mörgum stærri. Þó fékk Beitir NK eitt sinn síldarhol á Glettinganesflaki sem reyndist vera 1.322 tonn. Athyglisvert er að við toguðum einungis í 50 mínútur þannig að þarna var síldartorfan býsna þétt. Þegar við komum út fengum við þær upplýsingar að bátarnir væru að toga í lóði sem virtist nokkuð þétt en það kæmi ekki mikið út úr því. Við fórum utar, tókum þetta hol og þar reyndist síldin vera mun þéttari. Sannleikurinn er sá að þetta er alltof stórt hol. Þyngslin voru mikil og það reyndi gífurlega á allt um borð; spil, leiðara og poka. Það hefði að öllu leyti verið betra að fá þennan afla í tveimur eða þremur holum. Við njótum þess að vera á öflugu skipi og það bjargaði miklu. Í þessu holi var 30% íslensk sumargotssíld og hún er afar þung enda ekki mjög feit eftir hrygningu. Þetta hefði verið auðveldara ef eingöngu hefði verið um feita norsk-íslenska síld að ræða. En þetta slapp allt saman og nú bíðum við löndunar í Norðfjarðarhöfn og vinnum við að þrífa skipið eftir túrinn. Þessi síldarvertíð gengur vel og það er mikil síld hér austur af landinu. Við höfum verið að draga stutt og rótfiskað,“ segir Hjörvar.