Norski sjómaðurinn Bjørn Inge Lund fékk aldeilis að kenna á því er hann kastaðist veggja á milli í bátnum Årøyfisk. Báturinn var staddur utan við Hammerfest þegar hann fékk á sig brotsjó. Bjørn Inge lá í makindum í sófa og var að horfa á sjónvarpið þegar ósköpin dundu yfir. Svo vildi til að kokkurinn um borð náði atvikinu á myndband .