Í gærmorgun lét uppsjávarveiðiskipið Bjarni Ólafsson AK úr höfn í Neskaupstað og hélt áleiðis til Akureyrar þar sem það fer í slipp. Bjarni Ólafsson hefur legið bundinn við bryggju í Norðfjarðarhöfn í rúmlega eitt ár en Síldarvinnslan notaði skipið síðast á loðnuvertíðinni 2023.

Bjarni Ólafsson er nú til sölu. Skipið var smíðað árið 1999 og keypt hingað til lands árið 2015. Upphaflegur eigandi skipsins hér á landi var útgerðarfélagið Runólfur Hallfreðsson ehf. á Akranesi. Síldarvinnslan eignaðist meirihluta í Runólfi Hallfreðssyni árið 2016 en síðar voru fyrirtækin sameinuð undir nafni Síldarvinnslunnar.

Þess skal getið að fyrsta skipið í eigu Runólfs Hallfreðssonar ehf. var elsti Börkur sem Síldarvinnslan festi kaup á árið 1966.

Bjarni Ólafsson er um 2.000 tonn að stærð og burðargeta skipsins er tæp 2.000 tonn af kældum afla.