Mjög góð veiði var á flestum svæðum í netarallinu í ár og var þorskaflinn tæp 800 tonn sem er besti afli í netaralli frá upphafi, að því er fram kemur í frétt frá Hafrannsóknastofnun.
Árlegu netaralli Hafrannsóknastofnunar lauk 20. apríl og tóku sex bátar þátt; Saxhamar SH í Breiðafirði, Magnús SH í Faxaflóa, Friðrik Sigurðsson ÁR á svæðinu frá Reykjanesi að Þrídröngum, Glófaxi VE frá Þrídröngum að Skeiðarárdjúpi og Hvanney SF frá Meðallandsbugt að Hvítingum, Þorleifur EA fyrir norðurlandi.
Þorskaflinn var tæp 500 tonn í netarallinu í fyrra og tæp 600 tonn árið 2009 en afli í netaralli hefur farið vaxandi frá árinu 2007 sem er í samræmi við hækkun á stofnvísitölu þorsks í togararalli. Stofnvísitala þorsks í togararalli hefur farið hækkandi síðastliðin ár og má einkum rekja þá hækkun til aukningar á stærri þorski.
Eina svæðið sem skar sig úr hvað varðar þorskafla var kanturinn austur af Eyjum, en þetta er þriðja árið í röð þar sem afli hefur verið lélegur þar. Netabátar hafa ekki verið að sækja þorsk í kantinn síðustu ár heldur hafa verið í mjög góðri veiði uppi á grunninu. Netarallið er því eina vísbendingin um þróunina þar og líklegt er að þorskurinn gangi nú fyrr og meira upp á kantinn en áður.