Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir nánast fullfermi í Vestmannaeyjum á miðvikudagskvöld.

Var mest af ýsu í aflanum að því er segir á vef Síldarvinnslunnar. Hvor togari hafi einnig landaði um 20 tonnum í Neskaupstað á laugardaginn og beðið þar af sér brælu.

„Í þessum túr var víða farið meðal annars vegna veðurs. Við byrjuðum túrinn á Ingólfshöfða og þar var nuddveiði. Við urðum frá að hverfa þaðan vegna veðurs og þá var haldið austur fyrir land. Við lönduðum slatta í Neskaupstað og biðum þar þangað til veðrið skánaði,“ er haft eftir Ragnari Waage Pálmasyni, skipstjóra á Bergi. Síðan hafi verið farið á Gerpisflak að leita að ýsu en verið rólegt.

Ágætis kokteill á Meðallandsbugt

„Við héldum á Gula teppið og tókum þar eitt hol og þaðan í Berufjarðarálinn. Þar var ágæt dagveiði en lítið að hafa yfir nóttina. Keyrðum þaðan á Ingólfshöfðann og tókum einn sólarhring þar. Af Höfðanum var farið í Meðallandsbugtina og þar fengum við ágætis kokteil. Við enduðum svo á Pétursey þar sem tekið var eitt stutt hol áður en haldið var í land,” rekur Ragnar.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, var spurður hvort Vestmannaey hefði veitt jafn víða og Bergur, og sagðist hann hafa verið á mjög svipuðu róli.

„Byrjuðum á Ingólfshöfða, lönduðum í Neskaupstað og eftir það var veitt á Gerpisflaki, Skrúðsgrunni, í Berufjarðarál, Breiðamerkurdýpi og Meðallandsbugt. Það var reytingur hér og þar en hvergi neinn verulegur kraftur í veiðinni,” segir Birgir Þór á svn.is þar sem einnig kemur fram að bæði Bergur og Vestmannaey hafi haldið til veiða á ný í gærkvöldi.