Baader keypti 60% hlut í fyrirtækinu á síðasta ári en kaupir nú eftirstandandi 40% hlut af  I.Á.-Hönnun, félagi Ingólfs Árnasonar, stofnanda Skagans 3X og Guðrúnar Agnesar Sveinsdóttir, eiginkonu hans. Ingólfur lét af störfum sem forstjóri í lok síðasta árs.

Þetta kemur fram í tilkynningu þar sem kemur fram að Skaginn 3X verði hluti af Baader samsteypunni sem sérhæfir sig í hátæknilausnum í matvælaframleiðslu. Samþætting starfsemi félaganna er þegar hafin og reiknað er með að henni ljúki á næstu mánuðum.

„Þetta eru góðar fréttir fyrir fyrirtækið og starfsmenn þess og fyrirtækið verður nú betur í stakk búið að takast á við skuldbindingar sínar og þær kröfur sem gerðar eru til fyrirtækisins,“ er haft eftir Jeff Davis, stjórnarformanni Skagans 3X, sem mun áfram gegna stjórnarformennsku eftir viðskiptin.

Baader á sér ríflega 100 ára sögu en félagið var stofnað árið 1919. Félagið  hefur um áratugaskeið verið þekkt fyrir framleiðslu véla, og ekki síst til fiskvinnslu. Baader er með starfsemi víða um heim og á annað þúsund starfsmenn. Félagið hefur verið með starfsemi á Íslandi frá árinu 1959.

Guðjón Ólafsson er starfandi forstjóri fyrirtækisins.