Færeyskir línu- og krókabátar veiddu á fyrstu fimm mánuðum ársins tæp 2.495 tonn af botnfiski í íslenskri lögsögu. Þetta er nokkuð meiri afli miðað við árið í fyrra en á sama tíma á síðasta ári var botnfiskafli Færeyinga hér við land 1.947 tonn, að því er fram kemur á vef Fiskistofu .

Þorskaflinn er orðinn 695 tonn en á sama tíma í fyrra var hann 431 tonn. Þess má geta að heimildir færeyskra skipa  til þorskveiða innan íslenskrar lögsögu, eru 1.200 tonn líkt og undanfarin ár og hafa þau því nýtt tæp 58% aflaheimilda í tegundinni á yfirstandandi ári. Af öðrum tegundum má nefna að færeyskir bátar hafa veidd 502 tonn af ýsu og 661 tonn af löngu.

Færeysku bátar lönduðu mestum afla af Íslandsmiðum í apríl síðastliðnum eða 1.338 tonnum. Af þeim níu bátum sem lönduðu afla af Íslandsmiðum í apríl var Klakkur hæstur með 280 tonn. Næst kom Eivind með 232 tonn.