Nýtt verkefni er nú rétt nýhafið hjá Matís og samstarfsaðila. Verkefnið nefnist eCAP og snýr að því að rekja loðnu með umhverfis erfðagreininum (eDNA).

Frá verkefninu segir á heimasíðu Matís.

eCAP miðar að því að nota DNA sem finnst í hafinu til að finna og rekja loðnu til að auka þekkingu á breyttri dreifingu hennar og til að bæta stofnstærðarmat og fiskveiðar á íslenskum hafsvæðum.

„Það mun gagnast íslenskum sjávarútvegi, veita nýjar og betri aðferðir við mat á stofnstærð og hjálpa til við að meta heildar leyfilegan afla. Einnig mun eCAP leiða til minni kolefnislosunar hjá íslenska flotanum þar sem reikna má með því að sigla þurfi minna í leit að loðnunni, ef markmið verkefnisins nást,“ segir í tilkynningunni.

Samstarfsaðili Matís er Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, og stýrir stofnunin verkefninu.

Verkefnið er styrkt af Tækniþróunarsjóði.