Öll aflamet smábáta á makríl hafa verið slegin, að því er fram kemur á vef Landssambands smábátaeigenda. Þegar staðan var tekin í gær var aflinn kominn yfir átta þúsund tonn - 8.055 tonn.
Aflahæstur er Siggi Bessa SF með rúm 515 tonn. Alls hefur 51 bátur hafið veiðar og því er meðalafli á hvern bát 158 tonn.
Hin góðu aflabrögð sem hér er lýst svara til 6% af heildaraflanum, sem er kominn í 135 þúsund tonn. Það sýnir vel hversu brýnt það er að auka hlutdeild smábáta, en krafa LS er 16% hlutdeild, segir á vef LS.
Auk Sigga Bessa SF eru þrír bátar komnir með yfir 400 tonna afla og alls 11 með yfir 300 tonn.
Sjá stöðu makrílveiða handfærabáta HÉR.