Björgunarsveitir á Tálknafirði og frá Patreksfirði, björgunarskipið Vörður II og björgunarbáturinn Njörður, ásamt Fosnakongen og Fosnafjord, sem eru skip frá fiskeldisfyrirtækinu Arctic Fish á Tálknafirði, eru á strandstað þar sem hafrannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson strandaði fyrr í kvöld.

Bjarni Sæmundsson strandaður í Tálknafirði.
Bjarni Sæmundsson strandaður í Tálknafirði.

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Land­helg­is­gæsl­unni barst til­kynn­ing um að rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson hafi strandað í Tálknafirði klukk­an 21.15 í kvöld. Hafa tveir bát­ar á veg­um slysa­varn­ar­fé­laga á Pat­reks­firði og í Tálknafirði hafa verið ræst­ir út og er þyrla Gæsl­unn­ar í viðbrag­stöðu.

Tvö skip Land­helg­is­gæsl­unn­ar vinna nú að því að koma fólki úr rann­sókn­ar­skip­inu 20 manns eru um borð í skip­inu. Þegar síðast fréttist voru átta manns úr skipinu komnir úr því.

Veður­skil­yrði á svæðinu eru þokka­leg og hægviðri. Eng­in slys eru á fólki, samkvæmt talsmanni Landhelgisgæslunnar.

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Land­helg­is­gæsl­unni barst til­kynn­ing um að skipið hafi strandað í Sveins­eyri á móti inn­sigl­ing­unni í Tálknafirði klukk­an 21.15 í kvöld. Verið er að opna fjölda­hjálp­ar­stöð í íþrótta­hús­inu á Tálknafirði.