Nýlega lauk tíu daga sandsílaleiðangri Hafrannsóknastofnunarinnar á rannsóknaskipinu Dröfn RE 35. Markmið leiðangurs var m.a. að meta breytingar í stofnstærð og afla upplýsinga um styrk árganga sandsílis. Sjöunda sumarið í röð voru athuguð 4 svæði við landið, þ.e. Breiðafjörður, Faxaflói, Vestmannaeyjar að Vík og Ingólfshöfði.

Í leiðangrinum fékkst talsvert af seiðum í Faxaflóa og fengust seiði um allt rannsóknarsvæðið þar. Þetta er mesta magn af seiðum sem fengist hefur í flóanum frá því að athuganir hófust árið 2006. Ekki er hægt að segja til um hvort seiðin skila sér sem nýliðun í stofninn fyrr en á næsta ári með því að meta þá fjölda 1 árs sandsíla. Mun minna fékkst af seiðum á öðrum svæðum.

Lítið fékkst af eldra síli á öllum svæðum en þau sem fengust voru líklega flest af 2007 árganginum. Eins og í fyrra þá var þéttleiki eldra sandsílis lítill og einnig virtist útbreiðslan vera minni en áður innan hvers svæðis. Við fyrstu sýn virðist árgangurinn frá því í fyrra ekki ætla að skila nýliðun inn í stofninn sem máli skiptir.

Þessar fyrstu niðurstöður eru háðar óvissu því þær eru eingöngu byggðar á lengdarmælingum á síli en ekki á aldurslesningum. Vöxtur á milli ára er breytilegur hjá síli og einnig er mikill breytileiki í lengd eftir aldri innan árs og milli svæða. Á næstu mánuðum fara fram aldursgreiningar á sýnum ársins og frekari úrvinnsla.

Niðurstöður leiðangursins gefa þó til kynna að jákvæð teikn séu á lofti í Faxaflóa vegna magns sandsílaseiða þar og verður áhugavert að sjá hvernig þeim reiðir af fyrsta árið. Hins vegar er sandsílastofninn ennþá í mikilli lægð og þessar athuganir benda til að nokkra aldurshópa vanti í stofninn. Það voru þeir Valur Bogason og Kristján Lilliendahl sem önnuðust þessar rannsóknir um borð í Dröfn RE 35, en skipstjóri var Gunnar Jóhannsson.