Frystitogarinn Arnar HU1 kom nýlega til hafnar á Sauðárkróki eftir 30 daga túr með um 810 tonna afla upp úr sjó.

Verðmæti aflans nemur um 300 milljónum króna að því er segir á vefsíðu Fisk Seafood.

„Að langstærstum hluta var verið að veiðum á Vestfjarðamiðum en einnig vorum við á Tungunni og lítillega á fjöllunum. Það var fín veiði en við hefðum viljað sjá aðeins meira af ufsa. Mikið af karfa er á halanum og eiga skip oft í vandræðum út af honum,“ er haft eftir Bárði Eyþórssyni skiptastjóra á fisk.is.

„Veður í túrnum var mjög gott fyrir utan 3 til 4 daga sem kaldaði upp. Skipið er með um 21.500 kassa sem gera um 810 tonn uppúr sjó og aflaverðmætin eru um 300 milljónir,“ segir Bárður enn fremur.