Unnur Orradóttir Ramette, sendiherra Íslands í París, skrifaði undir samning því til staðfestingar fyrir hönd samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og Vegagerðarinnar, sem fara með vita- og hafnamál.
Alls hafa nú um 50 ríki undirritað samning um stofnaðild en tæplega tíu ríki fullgilt stofnsáttmálann. Alþjóðastofnunin verður að veruleika þegar þrjátíu ríki hafa fullgilt sáttmálann.
„Það er afskaplega mikilvægt fyrir Ísland að hafa stigið þetta skref í átt að því að gerast stofnaðili alþjóðastofnunar á þessu sviði, sem ætlað er að taka við því hlutverki að efla enn frekar siglingaöryggi. Íslensk stjórnvöld hafa tekið virkan þátt í alþjóðastarfi um að bæta öryggi á sjó og hér á landi hefur náðst eftirtektarverður árangur sem aðrar þjóðir horfa til. Það er því rökrétt skref að taka þátt í starfi þessarar nýju alþjóðastofnunar,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, í tilkynningu.
Nýja stofnunin tekur við hlutverki IALA, alþjóðasamtaka vitastofnana á sviði leiðsögu skipa og vita og verður framvegis alþjóðleg milliríkjastofnun. Með breytingunni er tryggt að IALA getur tekið fullan þátt í mikilvægu starfi við stöðlun siglinga á heimsvísu. Vegagerðin og forverar hennar hafa verið aðilar að IALA allt frá stofnun samtakanna árið 1957, þegar þáverandi Vita- og hafnamálastofnun var formlega boðið að vera stofnaðili að samtökunum.