„Þegar við vorum að klára á miðunum hófst alger mokveiði. Börkur fékk til dæmis 550 tonna hol og Beitir fékk hvorki meira né minna en 1.000 tonna hol,“ segir Þorkell Pétursson, skipstjóri á Barða NK sem kom til Neskaupstaðar í gærmorgun.

Rætt er við Þorkel á vef Síldarvinnslunnar. Þar kemur fram að Barði kom með tæp 1.400 tonn af makríl sem veiddist í Smugunni. Verið sé að vinna aflann í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Fiskurinn sé ýmist heilfrystur eða hausskorinn.

„Undir lokin vorum við að veiðum mjög norðarlega í Smugunni og það voru 520 mílur til Neskaupstaðar þegar lagt var af stað í land. Skipin eru nú að veiða enn norðar. Það hefur verið rosaleg ferð á fiskinum. Hann var á norðurleið þegar við vorum úti en nú skilst mér að hann stefni í austur í átt að norsku línunni. Veiðin hefur verið misjöfn, stundum þarf að leita að fiskinum og stundum er mok,“ segir Þorkell í viðtali á vefsíðu Síldarvinnslunnar

Sem fyrr segir fékk Beiti 1.000 tonna hol. „Þá hlýtur að hafa verið býsna þungt trollið hjá þeim Beitismönnum en þeir hafa örugglega reddað því ágætlega. Mér skilst að megnið af aflanum í þessu stóra holi hjá Beiti hafi komið á tveimur tímum eða svo,“ segir Þorkell sem kveður veðrið í túrnum hafa verið gott til að byrja með en í lokin hafi verið „helvítis kaldi“.

Lokið, verður við að landa úr Barða í dag og síðan haldið út aftur. „Annars er kvótinn farinn að minnka og það gengur fljótt á hann þegar veiðin er eins og hún hefur verið síðustu daga,“ segir Þorkell.

Þá er rætt við Grétar Örn Sigfinnsson, rekstrarstjóra útgerðar Síldarvinnslunnar, sem segir að gera hafi þurft ýmsar ráðstafanir vegna veiðiskotsins mikla um helgina. Börkur sé nú á leið til Færeyja með 2.100 tonn og Beitir sé á leið til Neskaupstaðar með 1.500 tonn. Samherjaskipin, sem eru í veiðisamstarfi með Síldarvinnsluskipunum, Vilhelm Þorsteinsson og Margrét, séu hins vegar að veiðum núna.