Fyrstu vísbendingar um árangur af síldarfælingu með svokölluðum „Thunderflash“ hvellhettum í Kolgrafafirði í gær benda til þess að aðferðin virki við að smala síld. Ákveðið hefur verið að nýta reynsluna frá í gær til þess að halda áfram fælingaraðgerðum í dag í því skyni að kanna hvort aðferðin dugi til að koma meginhluta síldarinnar af því svæði þar sem hún er í mestri hættu.
Hafrannsóknarstofnun vinnur nú að því að mæla magn síldar í firðinum nú, eftir aðgerðirnar í gær. Að þeim mælingum loknum verður hafist handa við að undirbúa framhald aðgerðanna í dag en ekki verður ljóst fyrr en undir kvöld með árangur þeirra.
Í frétt á vef atvinnuvegaráðuneytisins ennfremur:
Rétt er að taka fram að slíkar aðgerðir hafa ekki verið reyndar áður annars staðar eftir því sem menn komast næst. Ráðist er í þær í ljósi þeirra miklu hagsmuna sem eru í húfi endurtaki atburðirnir frá í fyrra sig, þegar síld drapst í tvígang í firðinum í tugþúsunda tonna tali. Eins og við var búist höfðu aðgerðirnar í gær ekki neikvæð áhrif á síldina - ekki varð vart við dauða síld í kjölfar þeirra og eru ekki taldar líkur á slíkum áhrifum.
Sjá nánar á vef ráðuneytisins.