Kolmunnaveiðin í færeysku lögsögunni hefur verið jöfn og góð að undanförnu.

Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Heimasíðan sló á þráðinn til Tómasar Kárasonar, skipstjóra á Beiti NK, í gærmorgun.

„Við erum á landleið núna með 3.000 tonn og munum væntanlega koma til Neskaupstaðar undir miðnætti. Þetta er fjórða veiðiferð Beitis eftir að kolmunnaveiðarnar hófust og ávallt hefur verið komið með um og yfir 3000 tonna afla til löndunar. Veiðin hefur verið jöfn og góð, allt upp í mokveiði, og veðrið hefur leikið við okkur. Staðreyndin er sú að kolmunnaveiðin hefur gengið betur hjá íslensku skipunum í ár en undanfarin ár og fiskurinn er einnig betri. Aflinn í þessari veiðiferð fékkst í sjö holum og vorum við að fá á milli 300 og 700 tonn í holi. Venjulega var dregið í sex til átta tíma þannig að það er alls ekki lengi dregið. Alltaf er verið að bæta veiðibúnaðinn og í þessum túr vorum við í fyrsta sinn með nýjan léttan poka frá Hampiðjunni og hann gafst býsna vel. Núna vorum við að veiðum suðaustur af Færeyjum, nærri miðlínu á milli Færeyja og Skotlands. Útlit fyrir áframhaldandi veiði er bara gott og menn ánægðir með árangurinn hingað til. Það er ekki hægt að vera annað en ánægður,“ segir Tómas.