Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæplega 36 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins 2010 samanborið við 26,5 milljarða á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um rúmlega 9 milljarða eða liðlega 34% á milli ára.
Aflaverðmæti botnfisks var í lok mars orðið rúmlega 27 milljarðar og jókst um 28% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 21,5 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 15 milljarðar og jókst um 30% frá fyrra ári.
Aflaverðmæti ýsu nam 4,7 milljörðum og jókst um 16%, en verðmæti karfaaflans nam tæpum 3,9 milljörðum, sem er 26% aukning miðað við fyrsta ársfjórðung 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 36% milli ára og nam tæpum 1,5 milljörðum fyrstu þrjá mánuði ársins.
Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 2,1 milljarði króna í janúar til mars 2010, sem er 25% aukning frá fyrra ári.
Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 83% milli ára og nam tæpum 6 milljörðum.
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam rúmum 16 milljörðum króna og jókst um 40% frá árinu 2009.
Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 45,0% milli ára og var um 5,9 milljarðar.
Aflaverðmæti sjófrystingar var 10,4 milljarðar sem 56,1% aukning milli ára.
Sjá nánar á vef Hagstofunnar, HÉR