Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 68 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2010 samanborið við rúma 54 milljarða á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um rúma 13 milljarða eða 25% á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok júní orðið liðlega 50 milljarðar og jókst um 26% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 40 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 25 milljarðar og jókst um 29% frá fyrra ári.

Aflaverðmæti ýsu nam 8,6 milljörðum og jókst um liðlega 6%, en verðmæti karfaaflans nam um 6,2 milljörðum, sem er 22% aukning frá árinu 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 25% milli ára og nam rúmum 3,4 milljörðum fyrri hluta ársins 2010.

Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 33,2% milli ára og nam rúmum 10,5 milljörðum.

Sjá nánar á vef Hagstofunnar, HÉR