Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 45,6 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2010 samanborið við 35 milljarða á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um 10,6 milljarða eða 30,2% á milli ára, að því er fram kemur í frétt frá Hagstofu Íslands.
Aflaverðmæti botnfisks var í lok apríl orðið 34,9 milljarðar og jókst um 25,5% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 27,8 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 18,4 milljarðar og jókst um 27,7% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 6 milljörðum og jókst um 9,8%, en verðmæti karfaaflans nam um 5,3 milljörðum, sem er 26% aukning frá árinu 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 38,6% milli ára og nam tæpum 2,1 milljarði fyrstu fjóra mánuði ársins.
Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 3,1 milljarði króna í janúar til apríl 2010, sem er 24,1% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 61,7% milli ára og nam rúmum 7,3 milljörðum. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 20,3 milljörðum króna og jókst um 38,2% frá árinu 2009. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 42,6% milli ára og var um 7,4 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var tæpir 14 milljarðar sem er 46,3% aukning milli ára.