Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 131 milljarði króna á árinu 2010 samanborið við rúma 115 milljarða á árinu 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæpa 16 milljarða eða 13,7% á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks var 93,5 milljarðar króna á árinu 2010 og jókst um 13,6% frá fyrra ári þegar aflaverðmætið nam 82,3 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 44,6 milljarðar og jókst um 20,8% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 15,2 milljörðum og dróst saman um 1% milli ára.

Verðmæti karfaaflans nam 12 milljörðum, sem er 20% aukning frá árinu 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 9,2% milli ára og nam 8,5 milljörðum á árinu 2010. Verðmæti annars botnfisks jókst í heild um 7,9% milli ára

Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 9,2 milljörðum króna á árinu 2010, sem er 6,6% samdráttur frá fyrra ári.

Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 21,1% milli ára og nam 26 milljörðum. Verðmæti síldaraflans á árinu 2010 nam tæpum 10,9 milljörðum sem er 14,6% samdráttur frá árinu 2009. Verðmæti makríls nam 7,8 milljörðum á árinu 2010 samanborið við 4,5 milljarða árið áður.

Sjá nánar á vef Hagstofu Íslands.