Verðmæti afla upp úr sjó nam 10,7 milljörum í júní sem er um 18,9% aukning samanborið við júní 2014, að því er fram kemur á vef Hagstofunnar.
Verðmæti botnfiskafla nam tæpum 8 milljörðum í mánuðnum og jókst um rúm 19% miðað við fyrra ár. Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 1,3 milljörðum í júní sem er aukning um tæpar 500 milljónir samanborið við júní 2014. Aflaverðmæti uppsjávartegunda nam um milljarði í júní sem er sambærilegt við fyrra ár. Verðmæti skel- og krabbadýraafla nam 436 milljónum í júní og dróst saman um 13% á milli ára.
Á tólf mánaða tímabili frá júlí 2014 til júní 2015 jókst aflaverðmæti um 7,9% miðað við sama tímabil ári fyrr. Á þessu tímabili hefur verðmæti uppsjávarafla aukist um tæp 22% og verðmæti botnfisks um tæp 5%.