Árið 2011 var afli íslenskra skipa tæp 1.149 þúsund tonn, 85 þúsund tonnum meiri en árið 2010. Aflaverðmæti nam tæpum 154 milljörðum króna og jókst um 15,7% frá fyrra ári, eða um 3,2% ef mælt er á föstu verði.

Þetta kemur fram í nýútkomnu riti Hagstofu Íslands sem nefnist Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2011.

Stærsti hluti afla íslenskra fiskiskipa var unninn á Austurlandi, mest uppsjávarafli sem landað var þar. Stærsti hluti botnfiskaflans var unninn á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum eða 46%. Af þorskaflanum fór mest í landfrystingu og makrílaflinn fór að langstærstum hluta annað hvort í landfrystingu eða var sjófrystur. Verðmæti aukaafurða sem féllu til við vinnslu fiskaflans nam 3,7 milljörðum króna á árinu 2011 og jókst um 15,8% frá árinu áður. Verðmæti aukaafurða telst ekki með í heildaraflaverðmæti.