Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 30,1 milljarði króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2012 samanborið við 23,5 milljarða á sama tímabili 2011. Aflaverðmæti hefur því aukist um 6,6 milljarða eða 28,1% á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks var 17 milljarðar og jókst um 28,5% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 13,2 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 9,8 milljarðar og jókst um 26% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 2,8 milljörðum og jókst um 48,4% en verðmæti karfaaflans nam 2,5 milljörðum, sem er 44% aukning frá fyrstu tveimur mánuðum ársins 2011. Verðmæti ufsaaflans jókst um 47,8% milli ára og nam 1 milljarði króna í janúar til febrúar 2012.

Verðmæti uppsjávarafla nam um 11 milljörðum króna í janúar til febrúar 2012, sem er um 29,6% aukning frá fyrra ári. Sú aukning skýrist að mestu af loðnuafla að verðmæti 10,8 milljarðar króna samanborið við 7,3 milljarða á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2011. Aflaverðmæti flatfisksafla nam um 1,9 milljörðum króna, sem er 17,7% aukning frá janúar til febrúar 2011.

Sjá nánar á vef Hagstofunna r.