Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 58,5 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2012 samanborið við 46,6 milljarða á sama tímabili 2011. Aflaverðmæti hefur því aukist um 11,9 milljarða eða 25,5% á milli ára, að því er fram kemur í frétt frá Hagstofu Íslands.
Aflaverðmæti botnfisks var 36,6 milljarðar og jókst um 19,3% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 30,6 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 19,8 milljarðar og jókst um 15,8% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 5,6 milljörðum og jókst um 21,4% en verðmæti karfaaflans nam 6 milljörðum, sem er 46,1% aukning frá fyrstu fjórum mánuðum ársins 2011. Verðmæti ufsaaflans jókst um 20,1% milli ára og nam 2,4 milljörðum króna í janúar til apríl 2012.
Verðmæti uppsjávarafla nam um 16,2 milljörðum króna í janúar til apríl 2012, sem er um 48,2% aukning frá fyrra ári. Sú aukning skýrist að mestu af loðnuafla að verðmæti 13 milljörðum króna samanborið við 8,7 milljarða á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2011. Aflaverðmæti flatfisksafla nam um 4 milljörðum króna, sem er 11,9% aukning frá janúar til apríl 2011.