Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 143 milljörðum króna fyrstu 11 mánuði ársins 2011 samanborið við tæpa 125 milljarða á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 18,3 milljarða króna eða 14,7% á milli ára. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofu Íslands.
Aflaverðmæti botnfisks fyrstu 11 mánuði ársins nam 87,4 milljörðum króna og jókst um 0,7% sé miðað við sama tímabili árið 2010. Verðmæti þorskafla var um 42,3 milljarðar og jókst um 2,3% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 10,9 milljörðum og dróst saman um 23,8%, en verðmæti karfaaflans nam 13,3 milljörðum, sem er 21,9% aukning miðað við sama tímabil árið 2010. Verðmæti ufsaaflans jókst um 6,2% milli ára í 8,3 milljarða.
Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 9,4 milljörðum króna fyrstu 11 mánuði ársins sem er 9,5% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 59% milli ára og nam 42,4 milljörðum. Stafar sú aukning að stærstum hluta af verðmætaaukningu loðnuaflans, sem jókst um 256% á milli ára og nam 8,9 milljörðum króna.
Sjá nánar á vef Hagstofunnar.