Ráðast á í tvær beinar aðgerðir á næstunni til að koma í veg fyrir olíumengun frá flaki flutningaskipsins El Grillo í Seyðisfirði og verða þær fjármagnaðar af umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kynnti aðgerðirnar í ríkisstjórn í morgun og greint er frá aðgerðunum í tilkynningu.

Þar segir að olíumengun frá flaki flutningaskipsins El Grillo í botni Seyðisfjarðar hefur verið viðvarandi vandamál undanfarin sumur, þrátt fyrir umfangsmiklar hreinsunaraðgerðir árið 2001. Eftir mengunarviðburð sl. sumar setti ráðuneytið á fót vinnuhóp, með þátttöku Umhverfisstofnunar, Landhelgisgæslunnar og Múlaþings, auk ráðuneytisins, um mótun tillagna til að bregðast við líklegri áframhaldandi mengun frá flakinu.

Í kjölfar þeirra vinnu hefur verið ákveðið að kaupa flotkvíar til að fanga olíubrák frá El Grillo ef olía berst áfram upp á yfirborðið. Munu hafnaryfirvöld á Seyðisfirði hafa umsjón með uppsetningu á búnaðinum. Einnig verður ráðist, nú í vor þegar aðstæður eru hvað bestar, í framkvæmdir við að steypa fyrir sprungur á tveimur tönkum skipsins og stöðva með því frekari olíuleka. Landhelgisgæslan mun hafa umsjón með þeim aðgerðum. Farið var í slíkar aðgerðir árið 2020, sem tókst vel en síðar komu upp lekar á nýjum stöðum. Vonir standa til að tekist hafi að finna alla helstu staði þar sem veikleikar eru, þannig að viðgerðirnar haldi um nokkurn tíma.

Samhliða þessum aðgerðum verður farið í viðræður við erlenda sérfræðinga um mögulega langtímalausn til að koma í eitt skipti fyrir öll í veg fyrir mengun frá El Grillo. Ljóst er að þar er um flókið verkefni að ræða, þar sem aðstæður við flakið eru erfiðar; meðal annars eru skotfæri nálægt tönkunum sem geta skapað hættu við aðgerðir.

„Ég vonast til að þessar aðgerðir komi í veg fyrir olíumengun á næstu árum frá El Grillo og dragi úr tjóni ef olía leitar upp þrátt fyrir viðgerðir,“ segir Guðlaugur Þór.

„Við munum jafnframt leita leiða til að tryggja framtíðarlausn, þannig að engin hætta sé á leka. Það hefur verið gott samstarf við heimamenn og aðra í þessu máli og ég veit að það mun haldast áfram.“

Kostnaður við aðgerðirnar og kaup á flotkvíunum nemur um 50 milljónum króna.