Hafrannsóknastofnun ráðleggur að veiðar á grásleppu fiskveiðiárið 2023/2024 verði ekki meiri en 4.030 tonn. Er það um 9% lækkun milli ára. Ráðgjöfin byggir að mestu á stofnvísitölu úr stofnmælingu botnfiska í mars 2024 en einnig frá árinu á undan. Vísitölur þessara tveggja ára voru svipaðar og vel undir langtíma meðaltali og því lægri en mörg ár þar á undan.

Stofnvísitölur hrognkelsa sveiflast milli ára, sem endurspegla að hluta til óvissu í mælingunum. Vegna þessa vegur stofnvísitala sama árs 70% á móti 30% vægi vísitölu fyrra árs við útreikning ráðlagðs hámarksafla. Að teknu tilliti til þess leggur Hafrannsóknastofnun jafnframt til að upphafsaflamark fiskveiðiárið 2024/2025 verði 1.216 tonn.