Á Austfjörðum starfa stór og öflug sjávarútvegsfyrirtæki sem eiga það flest sameiginlegt að leggja áherslu á veiðar og vinnslu á uppsjávarfisk. Starfsemi þessara fyrirtækja er ekki aðeins mikilvæg fyrir landsvæðið heldur stendur starfsemi þeirra undir 4,2% af landsframleiðslu, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.

Um 3.400-4.700 starfa á Íslandi má rekja til starfsemi sjávarútvegsins á Austfjörðum. Þá skiptir starfsemin miklu í gjaldeyrissköpun Íslendinga en árið 2012 fluttu fyrirtæki á Austfjörðum út sjávarafurðir fyrir 46 milljarða króna sem nemur 7,3% af útflutningsverðmætum Íslendinga það ár. Vekur það athygli að sjávarútvegsfyrirtækin á Austfjörðum greiddu 9% af tekjuskatti fyrirtækja á Íslandi árið 2012.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í skýrslunni „Umsvif sjávarútvegs á Austfjörðum“ sem hagfræðineminn Ásgeir Friðrik Heimisson hefur unnið að í sumar en skýrslan er unnin fyrir Austurbrú.