Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, hefur úthlutað 6.707 þorskígildistonna byggðakvóta fiskveiðiársins 2012/2013. Alls er byggðakvóta úthlutað til 32 sveitarfélaga og í þeim fengu 49 byggðarlög úthlutun.

Úthlutun byggðakvótans byggir á upplýsingum frá Fiskistofu um samdrátt í botnfiskafla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks annars vegar og samdrætti í rækju- og skelvinnslu hins vegar frá fiskveiðiárinu 2002/2003 til fiskveiðiársins 2011/2012.

Hámarksúthlutun til byggðarlags er 300 þorskígildistonn og fá sex byggðarlög það hámark, Flateyri, Skagaströnd, Dalvík, Árskógssandur, Vopnafjörður og Hornafjörður. Lágmarksúthlutun er 15 þorskígildistonn, eigi byggðarlag á annað borð rétt til úthlutunar og fá fjögur byggðarlög þá úthlutun.

Sjá nánar um úthlutunina á vef ráðuneytisins.