Frá árinu 1989 hafa 54 nýjar fisktegundir fundist í hafinu við Ísland. Það eru einkum fjórir þættir sem ráða því að nýjar tegundir finnast, þ.e. auknar rannsóknir, meiri sókn á dýpra vatn, aukinn sjávarhiti og innflutningur tegunda af mannavöldum með kjölvatni skipa.
Meðal þeirra tegunda sem fundist hafa hér við land er krákur sem hér fannst síðast árið 2012. Hann þykir afskaplega góður matfiskur. Þó fylgir sá böggull skammrifi að mannslíkaminn nær ekki að melta ákveðin fituefni í honum. Of mikil neysla getur því leitt til tíðra salernisferða.
Meðal sjaldgæfra fiska sem hafa fundist hér er sæsteinssuga. Hún er rándýr eða sníkjudýr, eftir því hvernig hún er flokkuð, og leggst á fisk og sýgur úr þeim blóð.
„Þeir sem eru hvað óhamingjusamastir með tilveru sæsteinssugunnar eru stangveiðimenn. Það hefur borið á því á Suðurlandi að sjóurriði er sár eftir hana. Ein sæsteinssuga náðist meira að segja föst á urriða eftir að hann var kominn upp í ferskvatn,“ segir Jónbjörn Pálsson fiskifræðingur.
Sjá nánar í Tímariti Fiskifrétta.