Alls 548 bátar hafa fengið strandveiðileyfi og 455 hafa þegar hafið veiðar. Tæpur helmingur þeirra - 220 - er við veiðar á svæði A sem nær frá Snæfellsnesi til Súðavíkur
Að loknum fimm fyrstu dögum strandveiða er meðalafli á hvern bát hæstur á
svæði A 1.713 kg,
svæði D 1.334 kg
svæði C 1.037 kg
svæði B 951 kg
Á sama tíma höfðu 53% veiðiheimilda verið nýttar á svæði A, en á öðrum svæðum mun minna. Viðmiðunarafli svæðisins ætti því að nýtast fram í næstu viku.
Frá þessu er skýrt á vef LS