Í dag eru fjörutíu ár liðin síðan TF-RAN, þyrla Landhelgisgæslunnar, fórst í Jökulfjörðum með allri áhöfn. Slysið varð skömmu eftir flugtak þyrlunnar frá varðskipinu Óðni undan Kvíum á Jökulfjörðum að kvöldi 8. nóvember 1983.

Í áhöfn þyrlunnar voru flugstjórarnir Björn Jónsson og Þórhallur Karlsson auk Sigurjóns Inga Sigurjónssonar stýrimanns og Bjarna Jóhannessonar flugvélstjóra.

TF-RAN, kom í flugflota Landhelgisgæslunnar árið 1980. Þyrlan var sérhönnuð til leitar-, björgunar-, löggæslu- og eftirlitsstarfa. Hún var af gerðinni Sikorsky S-76 og fékk kallnúmerið TF-RAN.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar fór í sérstakt flug vestur í Jökulfirði í morgun þar sem þeirra sem fórust í þessu hörmulega slysi var minnst.