Útflutningsvermæti sjávarafurða fyrstu átta mánuði ársins nemur 226 milljörðum króna sem er 18% aukning miðað við sama tímabil í fyrra. Aukningin er enn meiri í erlendri mynt, eða sem nemur rúmum 22%. Útflutningsvermæti uppsjávarafurða hefur hlutfallslega aukist mest eða um 45% á föstu gengi. Verðmæti botnfiskafurða hefur aukist um rúm 13%. Þá hefur útflutningsverðmæti skelfiskafurða, sem er að langstærstum hluta rækja, eykst um 26% á föstu gengi. Þetta kemur fram í samantekt Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.
Loðna og síld skýra alfarið þá aukningu sem orðið hefur í útflutningsverðmæti uppsjávarafurða á árinu, enda er samdráttur í útflutningsverðmæti bæði á afurðum makríls og kolmunna. Útflutningsverðmæti síldarafurða er komið í tæpa 8 milljarða króna á fyrstu 8 mánuðum ársins, sem er rífleg tvöföldun á milli ára. Af einstaka tegundum sjávarafurða er það loðnan sem á stærstan þátt í þeirri aukningu sem orðið hefur í útflutningsverðmæti sjávarafurða á árinu. Útflutningsverðmæti loðnuafurða er komið í rúma 36 milljarða króna á fyrstu 8 mánuðum ársins, sem er um 87% aukning á föstu gengi á milli ára. Samsetning loðnuafurða er allt önnur nú í ár en í fyrra, sem má rekja til þess að loðnukvóti síðasta fiskveiðiárs var margfalt stærri en árið á undan. Það eitt og sér hefur veruleg áhrif á aflaráðstöfun, en eftir því sem kvótinn er stærri fer almennt hlutfallslega meira í bræðslu með tilheyrandi aukningu í útflutningi á fiskimjöli og lýsi.
Þorskur og ufsi skýra langstærstan hluta þeirrar aukningar sem orðið hefur í útflutningsverðmæti botnfiskafurða á árinu. Útflutningsverðmæti þorskafurða er komið í tæpa 96 milljarða króna á fyrstu 8 mánuðum ársins, sem er aukning upp á tæp 12% á föstu gengi frá sama tímabili í fyrra. Á sama tíma hefur útflutningur dregist saman um tæp 8% að magni til. Hækkun afurðaverðs skýrir þá aukningu sem orðið hefur á heildarverðmætum útfluttra þorskafurða að miklu leyti. Eins eru sjávarútvegsfyrirtæki stöðugt að leita leiða til þess að auka verðmætasköpun, til að mynda með þróun verðmætari afurða úr þorski. Það hefur vitaskuld einnig mikil áhrif.
Aukin fullvinnsla á ufsa heima fyrir
Margfalt meiri aukning hefur orðið í útflutningsverðmæti ufsaafurða, sem eru komin í tæpa 14 milljarða króna á fyrstu 8 mánuðum ársins. Aukningin á milli ára nemur um 57% á föstu gengi. Á sama tíma hefur útflutningur að magni til dregist saman um rúm 8%. Vissulega hefur afurðaverð á ufsa hækkað á undanförnum mánuðum, en það er þó meira í spilunum en það. Þessa miklu aukningu í verðmætum má að stórum hluta rekja til þess að fullvinnsla á ufsa heima fyrir hefur stóraukist á milli ára. Þannig hefur útflutningur á ferskum ufsaflökum aldrei verið meiri en nú í ár, auk þess sem veruleg aukning er í útflutningi á frystum flökum. Á síðustu tveimur árum hefur útflutningur á heilum og hauskornum ufsa verið um þriðjungur af útfluttu magni á fyrstu 8 mánuðunum, en nú í ár er hlutfallið 18%. Þetta eitt og sér leiðir til þess að minna er flutt út að magni til en verðmætasköpun innanlands verður meiri fyrir vikið, með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á þjóðarbúið.