Börkur NK kom til Neskaupstaðar í fyrrinótt með tæp 1.700 tonn af norsk-íslenskri síld. Vinnsla á aflanum hófst í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar síðdegis í gær þegar lokið var við að vinna síld úr Beiti NK.

Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóri á Berki segir aflann hafa fengist innarlega á Héraðsflóa.

„Hann fékkst í fimm holum og voru 350-400 tonn í hverju holi. Dregið var í tvo og hálfan til þrjá tíma. Þetta gekk býsna vel enda vorum við einungis tæplega 30 tíma á miðunum. Þetta er fínasta síld sem hentar vel til vinnslu en 15-20% af aflanum er íslensk sumargotssíld," segir Hjörvar í samtali við tíðindamann Síldarvinnslunnar.

30 mílur á miðin

„Þessi veiðiskapur gerist ekki þægilegri enda þurfum við ekki að fara nema um 30 mílur að heiman á síldarmiðin. Þarna er töluvert af síld á ferðinni og hún er mest á Héraðsflóanum og norður í Bakkaflóa. Það hefur lítið verið leitað sunnar en undanfarin ár hefur síldin fært sig sunnar þegar á líður. Veiðarnar hófust heldur fyrr núna en undanfarin ár en þær hafa gengið afar vel. Nú er hins vegar bræla á miðunum og ég held að ekkert skip sé úti. Það verður líklega bræla fram á föstudag,“ segir Hjörvar.