Fyrstu átta mánuðina 2011 voru fluttar út vörur frá Íslandi fyrir 397,5 milljarða króna, þar af voru sjávarafurðir 152,1 milljarður, að því er fram kemur í frétt frá Hagstofu Íslands.
Fyrstu átta mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 41,1 milljarði eða 11,5% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 38,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 9,6% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 56,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 11,5% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls og kísiljárns. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða. Útflutningur áls nam 154,7 milljörðum króna fyrstu átta mánuðina, sem er litlu meira en útflutningur sjávarafurða.