Um borð í varðskipinu Þór var þjóðhátíðardagurinn nokkuð hefðbundinn en þar bar helst til tíðinda að skipið sigldi fram á stóran trjádrumb sem flaut á Breiðafirði. Drumburinn sem var 15 metra langur var hífður um borð í varðskipið. Gæslan telur að drumburinn hefði auðveldlega getað orðið til vandræða fyrir minni skip og báta.

Margir vörðu þjóðhátíðardeginum á sjó miðað við tölur úr kerfum stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar. Í hádeginu á þjóðhátíðardaginn voru 822 skip og bátar á sjó. Veðrið var með besta móti víðast hvar á landinu auk þess sem strandveiðitímabilið stendur sem hæst. Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar höfðu því í nógu að snúast.