Fyrsta tímabili strandveiða 2017 er lokið og á vef Landssambands smábátaeigenda er að finna samantekt um hvernig gekk.

471 bátur var á veiðum í nýliðnum maí móti 547 í fyrra. Það er svipaður fjöldi og í sama mánuði 2015, en langtum færri en á metárinu 2012 þegar 586 bátar voru á strandveiðum.

Fækkunin á sér nokkrar skýringar. Sú sem vegur langþyngst er það sem fæst fyrir þorskinn. Verð nú er það lægsta í krónum talið frá upphafi strandveiða. Það dregur úr arðsemi veiðanna og um leið úr áhuga og getu til að stunda þær.

Meðalverð á fiskmörkuðum fyrir hvert kíló af óslægðum þorski sem veiddur var handfæri í nýliðnum maí var 195 krónur en 248 krónur á sama tíma í fyrra.

Graf á vef LS sýnir verðþróunina á þorski  í maí frá 2010 og segir það  allt sem segja þarf um þá erfiðleika sem nú herja á undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar - sjávarútveginn. Mismunur á kílóverði við upphaf strandveiða 2010 er 116 krónur.