Óháð vottunarnefnd á vegum írsku vottunarstofunnar Global Trust/SAI Global hefur endurvottað veiðar á ýsu (Melanogrammus aeglefinus) og ufsa (Pollachius virens) á Íslandsmiðum samkvæmt íslensku kröfulýsingunni um ábyrgar fiskveiðar (Icelandic Responsible Fisheries Management Specification). Vottunin staðfestir að veiðunum er stjórnað á ábyrgan hátt í samræmi við alþjóðlega viðurkenndar kröfur og ber vitni um framþróun í íslenskum fiskveiðum.

Kröfulýsingin sem vottað er eftir er staðall sem byggir efnislega á samþykktum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO). Óháð mat vottunarstofunnar var unnið eftir ISO65 faggiltu kerfi Global Trust og veitir trúverðuga vottun þriðja aðila á ábyrgri fiskveiðistjórnun.

Iceland Responsible Fisheries
Iceland Responsible Fisheries
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Úttektin fól í sér yfirgripsmikla skoðun á íslenska fiskveiðistjórnunarkerfinu, þar á meðal stjórnunarreglum, aflamarkskerfinu og mati á stærð stofnanna. Niðurstaða úr mati vottunarnefndar var að stjórnkerfið og aflareglur fælu í sér varúðarnálgun sem stuðlar að ábyrgum veiðum og góðri umgengni um vistkerfið.

Útflutningsverðmæti ýsuafurða var rúmlega 19 milljarðar króna árið 2013 og ufsaafurða rúmlega 27 milljarðar króna. Aflamark í ýsu á yfirstandandi fiskveiðiári er 30.400 tonn og ufsa 58.000 tonn.