Það bar til tíðinda á fiskmörkuðum í gær að ýsa seldist á hærra verði en þorskur. Vakin er athygli á þessu á vef Landssambands smábátaeigenda.

Seld voru 17,7 tonn af óslægðri ýsu og var meðalverðið 349 krónur á kíló. Af þorski voru seld 37,7 tonn og fengu kaupendur hann á 340 krónur á hvert kíló.

Eins og áður hefur komið fram eru markaðir fyrir ýsu afar góðir sem sýnir sig vel í því góða verði sem greitt er fyrir hana um þessar mundir, segir ennfremur á vef LS.