Fyrsti dagur strandveiða 2021 er í dag 3. maí. Alls er hverjum bát heimilt að róa í 12 daga í hverjum mánuði maí, júní. júlí, ágúst. Óheimilt er að róa föstudaga, laugardaga og sunnudaga. Alls hafa strandveiðibátar því 15 daga til að ná þeim 12 dögum sem eru í boði í maí.

Áhugi fyrir veiðunum er mikill, að því er kemur fram á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda sem marka má á umsóknum sem borist hafa til Fiskistofu. Þegar lokað var fyrir umsóknir á föstudag höfðu 408 sótt um leyfi, sem eru 74 bátum fleira en á sama tíma í fyrra.

„Óvarlegt er að ætla að fjölgun báta verði jafnmikil og þarna kemur fram, en nánast öruggt að sá viðsnúningur sem varð fyrir þremur árum mun halda áfram. Þar á undan tímabilið, eða tímabilið 2016 – 2018, var þróunin neikvæð,“ segir á heimasíðu LS.

LS berst nú fyrir að fá reglugerð breytt þannig að tryggja megi nægan þorskafla til strandveiða í 12 daga í hverjum mánuði. Í fyrra nægði viðmiðunin ekki, þrátt fyrir að bætt hefði verið við hana og voru veiðar þá stöðvaðar 19. ágúst.