Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum, eða s.k. vorrall, hófst í vikunni og stendur yfir næstu þrjár vikurnar. Fimm skip taka þátt í verkefninu; togararnir Bjartur NK, Ljósafell SU og Jón Vídalín VE og rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson. Alls verður togað á um 600 stöðvum vítt og breitt á landgrunninu á 20-500 m dýpi eins og sjá má á þessari mynd .
Vorrallið hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti á hverju ári síðan 1985. Helstu markmið eru að fylgjast með breytingum á stofnstærðum, aldurssamsetningu, fæðu, ástandi og útbreiðslu helstu fisktegunda við landið, og hitastigi sjávar.
Einnig er safnað sýnum vegna ýmissa rannsókna, t.d. á mengandi efnum í sjávarfangi. Helmingur togstöðva var í upphafi staðsettur af reyndum skipstjórum en öðrum stöðvum var dreift um miðin með tilviljunarkenndum hætti. Undanfarin ár hafa skipstjórar einnig sett út aukastöðvar þar sem von er um þorsk í útköntum, aðallega fyrir norðvestan og norðaustan land.
Úrvinnsla mælinganna og aldursgreiningar fara fram í lok mars og fyrstu niðurstöður verða kynntar í apríl.
Fylgjast má með ferðum rallskipanna á vef Hafró, HÉR